Tvö ung börn eru meðal þeirra sem voru drepnir í árásum Ísraela á Suður-Líbanon í gærkvöld og í nótt, samkvæmt fréttum líbanskra fjölmiðla. Þeir segja að níu þeirra hafi verið í sama fjölbýlishúsinu sem Ísraelar sprengdu og að tveir björgunarstarfsmenn hefðu verið í bíl sem varð fyrir árás.Björgunarmenn leituðu í rústunum í morgun.Húsið er í Kfar Rumman. Íbúar þorpsins lögðu á flótta þegar bardagar hófust í mars. Þeir sneru aftur heim eftir að tilkynnt var um vopnahlé í júní.Ísraelar vöruðu íbúa í Deir Zahrani við yfirvofandi árásum í gærkvöld og í nótt og hvöttu þá til að hafa sig á brott. AFP-fréttaveitan segir að engin slík viðvörun hafi verið gefin út fyrir árásina á Kfar Rumman.Ísraelska utanríkisráðuneytið sagði í dag að skæruliðar Hezbollah héldu áfram stöðugum drónaárásum sínum. Að