Færri tengifarþegar en fleiri sem koma til landsins

Farþegum Icelandair fækkaði um fimm prósent milli ára í ágúst. Alls flugu 577 þúsund með félaginu. Framboð á flugsætum dróst saman milli ára.Tengifarþegum fækkaði um 27 prósent milli ára en farþegum frá Íslandi fjölgaði um 12% og farþegum í innanlandsflugi um 4%. Í tilkynningu frá Icelandair segir að þetta sé í samræmi við þá stefnu félagsins að leggja meiri áherslu á markaðina til og frá Íslandi. Auk þess hafi mikil eftirspurn verið eftir flugsætum í tengslum við sólmyrkvann í síðasta mánuði.Flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Færri tengifarþegar en fleiri sem koma til landsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd