Líklegt er að snjóskaflinn í Gunnlaugsskarði Esjunnar hverfi eftir tíu daga eða svo. Þetta er mat Sigurpáls Ingibergssonar tölvunarfræðings sem fór um helgina til þess að kanna aðstæður og mæla. Skaflinn er í 808 m hæð; 17,5 m langur og 6,5 m breiður og dýpt mældist yfir 35 cm.