Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála rannsakar íkveikju á Stuðlum í síðasta mánuði sem alvarlegt atvik. Morgunblaðið greinir frá og hefur eftir Herdísi Gunnarsdóttur, forstjóra stofnunarinnar, sem staðfestir að íkveikjan sé til rannsóknar. Morgunblaðið greindi frá því á föstudag að drengur hefði kveikt eld í dýnu í herbergi sínu. Starfsfólk brást skjótt við og sá til þess að ekki fór verr.Meðferðarheimilið Stuðlar.RÚV / Ragnar Visage