Blæs suðaustan til og rignir fyrir austan

Hvassviðri er á Suðausturlandi þar sem vindur er að jafnaði 15 til 20 metrar á sekúndu og fer yfir 30 metra á sekúndu í hviðum á stöku stað. Veðurstofan biður fólk að hafa varann á, sérstaklega ef það er á farartækjum sem taka á sig mikinn vind. Gul viðvörun gildir til klukkan fjögur.Talsvert rignir á Austfirðinga framan af degi en það dregur úr úrkomu síðdegis.Annars staðar er rólegra veður.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðlæg átt, víða 8-13 metrar á sekúndu og skýjað með köflum eða léttskýjað suðvestan- og vestantil á landinu. Norðan 13-20 metrar á sekúndu suðaustan- og austantil og talsverð rigning á Austfjörðum, en dregur úr úrkomu síðdegis. Mun hægari vindur í kvöld og léttir til. Hiti 8 til 16 stig að deginum, hlýjast á Suðurlandi.Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt á morgun og bja
Blæs suðaustan til og rignir fyrir austan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd