Slökkvilið að störfum. Mynd úr safni.RÚV / Ragnar VisageSlökkvilið höfuðborgarsvæðisins þurfti að reykræsta hótel í Hlíðahverfi í gær eftir að mikill reykur barst frá bakaraofni. Einnig barst tilkynning um eld í fjölbýlishúsi í Kópavogi sem reyndist aðeins vera íbúa að grilla, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Innbrot á veitingastað í Vesturborginni er til rannsóknar og nokkrir ökumenn voru sektaðir fyrir margvísleg brot. Engan sakaði í umferðaróhappi í Grafarvogi en eitt ökutæki varð óökufært eftir. Enginn meiddist heldur þegar rafhlaupahjóli var ekið á bíl í Hafnarfirði.