Musk óskar leiðtoga AfD til hamingju með sigurinn í Saxlandi-Anhalt

Elon Musk er ríkasti maður heims og á meðal annars bílaframleiðslufyrirtækið Tesla og geimferðafyrirtækið SpaceX.AP / Mark SchiefelbeinBandaríski auðkýfingurinn Elon Musk hefur sent Alice Weidel, leiðtoga þýska harðlínuflokksins Alternative für Deutschland, árnaðaróskir eftirkosningasigurinn í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt.„Vel gert,“ skrifaði Musk undir færslu Weidel á samfélagsmiðlinum X þar sem hún hyllti oddvitann Ulrich Siegmund. Hann þakkar Musk á móti fyrir kveðjuna og stuðninginn.Flokkurinn hlaut tæplega 44 prósent atkvæða en tryggði sér ekki meirihluta á þingi sambandslandsins. Elon Musk hefur beitt áhrifum sínum til að gagnrýna þýsk stjórnvöld og ítrekað lýst yfir stuðningi við AfD.
Musk óskar leiðtoga AfD til hamingju með sigurinn í Saxlandi-Anhalt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd