Donald Trump Bandaríkjaforseti beindi í gær athyglinni í óvænta átt við þá iðju sína að breyta staðarnöfnum þegar hann stakk upp á að nafni ríkisins Nýju Mexíkó yrði breytt í Nýja Ameríka.Í færslu á samfélagsmiðlum sagði forsetinn marga hafa stungið upp á breytingunni og að sér þætti það frábær hugmynd. „Vá, ég elska þetta!!!“ skrifaði Trump. „Svo miklu virðulegra og fegurra fyrir íbúa þessa ríkis, sem hefur alla möguleika til að vera stórkostlegt.“Ríkisstjórinn, demókratinn Michelle Lujan Grisham, hafnaði tillögunni umsvifalaust og sagði Nýju Mexíkó hafa verið lengur til en Bandaríkin. Forsetinn væri aðeins að beina sjónum landsmanna frá raunverulegum vandamálum á borð við síhækkandi eldsneytisverð.Nokkrir bandarískir miðlar segja hugmyndina hafa átt uppruna sinn sem gabbfrétt á netinu. T