Dæmdi stríðsglæpamaðurinn Ratko Mladić, sem bar viðurnefnið Bosníu-slátrarinn, verður jarðsunginn í Belgrad, höfuðborg Serbíu í dag.Mladić var einn af leiðtogum Bosníu-Serba og andaðist í fangelsi undir lok ágúst þar sem hann sat af sér lífstíðardóm fyrir þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð í borgarastyrjöldinni í Júgóslavíu á tíunda áratug síðustu aldar.Hæst ber fjöldamorðin í Srebrenica 1995 þar sem menn hans myrtu 8.000 Bosníu-múslíma, karlmenn og drengi.Brotin voru þó mun fleiri, til að mynda þriggja ára umsátur Serba um bosnísku höfuðborgina Sarajevo í þrjú ár þar sem leyniskyttur og stórskotalið drápu þúsundir, karla, kvenna og barna, á götum úti og inni á heimilum borgarbúa.Sonurinn Darko kveðst stoltur af föður sínum. Kista Mladićs var flutt til Serbíu í flugvél á vegum rí