Örtröð í flugstöðinni við alþjóðaflugvöllinn við Djakarta.EPA / FAISAL RAMADHANMillilandaflugvöllurinn í indónesísku höfuðborginni Djakarta verður lokaður hið minnsta til klukkan sex síðdegis að staðartíma vegna eldgoss í fjallinu Anaka Krakatá. Lokunin nær einnig til minnst sex flugvalla til viðbótar. Þúsundir farþega komast því hvorki lönd né strönd og flugmálayfirvöld hvetja þá til að fylgjast grannt með framvindu mála.