Ísraelski herinn gerði loftárásir á bæ í suðurhluta Líbanons í hefndarskyni fyrir drónaárás Hezbollah

Ísraelsher hefur gert loftárásir á bæinn Deir Zahrani í suðurhluta Líbanons í kvöld og nótt. Sjónvarpsstöð Hezbollah-hreyfingarinnar al-Manar greinir frá árásunum. Skömmu fyrir árásirnar skipaði Ísraelsher íbúum bæjarins að forða sér með tilkynningu á arabísku og sagði bækistöð Hezbollah í bænum vera skotmarkið.Herinn sagði Hezbollah hafa lagt með sprengidróna til atlögu við sveitir hans án þess að tilgreina hvort nokkur hefði hlotið skaða af. Joseph Aoun forseti Líbanons biðlaði í gær til Bandaríkjamanna og alþjóðasamfélagsins að stöðva árásir Ísraelshers á landið.Þá hafði herinn skipað íbúum Arab Salim að koma sér brott vegna fyrirhugaðra árása á bækistöð Hezbollah í bænum. Það var í fyrsta sinn í heilan mánuð sem herinn gaf út slíka tilkynningu.Líbanon sogaðist inn í átökin í Mið-Austur
Ísraelski herinn gerði loftárásir á bæ í suðurhluta Líbanons í hefndarskyni fyrir drónaárás Hezbollah

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd