Minnst sex fórust í sprengingu í herstöð og ellefu enn saknað

Þrjú lík fundust í gær við leit í rústum húsa í bólivískri herstöð þar sem gríðarleg sprenging varð á föstudagskvöld að staðartíma. Varnarmálaráðuneyti Bólivíu segir vitað að sex hafi farist í sprengingunni, þar af minnst helmingur hermenn.Ellefu er enn saknað, flestir ungir hermenn á aldrinum 18 til 19 ára. Hús nærri miðpunkti sprengingarinnar hrundu og grjót þeyttist í allar áttir, þök sviptust af byggingum sem fjær eru og tré rifnuðu upp með rótum.Ráðuneytið hefur upplýst að sprengiefni af ýmsu tagi, sem gert hafði verið upptækt, var geymt í stöðinni, sem er í Viacha, hundrað þúsund manna borg í þrjátíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni La Paz.Ástæður sprengingarinnar eru enn á huldu þótt saksóknari rannsaki málið sem manndráp. Evo Morales fyrrverandi forseti segir stjórn núverandi f
Minnst sex fórust í sprengingu í herstöð og ellefu enn saknað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd