Boða 15 ára aldurstakmark að samfélagsmiðlum

Danska ríkisstjórnin hyggst feta í fótspor nokkurra annarra ríkja og setja aldurstakmark á notkun samfélagsmiðla.Christina Egelund ráðherra.EPA / Olivier MatthysÖllum börnum undir fimmtán ára verður þá algerlega bannað að nota miðlana. Christina Egelund, ráðherra vísinda-, mennta- og stafrænna mála, greindi frá þessu í dag. Frumvarp þessa efnis hefur verið í umsagnarferli og til stendur að lög taki gildi 1. júlí á næsta ári.Opinbert aldurstakmark á flestum samfélagsmiðlum er þrettán ár og í upphaflegum drögum átti að heimila þrettán til fjórtán ára börnum að nota þá með samþykki foreldra eða forráðamanna.
Boða 15 ára aldurstakmark að samfélagsmiðlum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd