Þær tillögur sem erindrekar Bandaríkjastjórnar lögðu fyrir úkraínska ráðamenn í dag gætu raunverulega orðið til að ljúka innrásarstríðinu að sögn talsmanns úkraínsku forsetaskrifstofunnar. Volodymyr Zelensky forseti sagði í færslu á X í dag að stríðið gæti teygt sig hið minnsta inn í veturinn þótt öllum árum væri róið í átt að varanlegum og sanngjörnum friði í Úkraínu. Hvorki hann né sendimennirnir Steve Witkoff og Jared Kushner tilkynntu um meiriháttar skref í átt að friði að loknum fundum dagsins en allir lýstu bjartsýni um framhaldið. Embættismaðurinn tók þó af tvímæli um að í tillögunum fælust áhrifaríkar lausnir. Witkoff og Kushner báru tillögurnar undir Vladimír Pútín Rússlandsforseta í gær og þaðan mátti heyra sama bjartsýnistóninn. Witkoff sagði bæði ríki þurfa að gefa eftir eigi f