Afstaða sveitarstjórnar Múlaþings til framtíðar samkomusalarins í Valaskjálf á Egilsstöðum liggur ekki fyrir.Íbúafundur var á Egilsstöðum í kvöld. Á fundinum fór sveitarstjóri yfir möguleikana sem sveitarfélagið hefur, sem er ýmist að gera ekkert, yfir í leigu á salnum upp á tæplega 30 milljónir á ári eða kaupa allt húsið fyrir 750 milljónir og flytja bæjarskrifstofurnar þangað. Um 70 manns mættu á fundinn og var samstaða meðal gesta um að halda þyrfti í salinn.Enginn sambærilegur salur er í bænum. Hann tekur allt að 450 manns í sæti og þar eru oft haldnir tónleikar, útskriftir, árshátíðir, dansleikir og önnur skemmtun. Eigendur hafa talað um að reksturinn standi ekki undir sér. Eftir vatnstjón í vor kemur til greina að breyta honum í smáherbergjahótel.Forseti sveitarstjórnar Múlaþings seg