Sum lönd stækka og önnur minnka á nýju heimskorti eftir að ályktun um það var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Landfræðingur segir landakort pólitísk.Nýtt heimskort sem samþykkt var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á að sýna heiminn á raunsannari hátt. Landfræðingur segir að kort eigi að sýna heiminn eins og hann er.Robert Dussey utanríkisráðherra Togo bar upp ályktunina fyrir hönd Afríkubandalagsins en fyrri kort hafa sýnt lönd sunnan miðbaugs talsvert minni en þau eru í raun. „Þetta er sögulegt fyrir Afríku og heiminn allan,“ sagði Dussey við þetta tilefni.Nýja kortið heitir jafnjarðarkort og sýnir rétt flatarmál landsvæða en ekki rétta lögun líkt og fyrri kortagerðir.Þessi ályktun er ekki bindandi fyrir neinn og enginn er skyldugur til að nota þetta kort. Í ályktuninni