Gætu orðið söguleg kosningaúrslit í Þýskalandi

Þýski harðlínuflokkurinn AfD meira en tvöfaldar fylgi í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt samkvæmt útgönguspám.Flokknum er spáð 44,5% fylgi og Kristilegum demókrötum, flokki Friedrichs Merz Þýskalandskanslara, 18,5%. Sá flokkur hefur stýrt Saxlandi-Anhalt frá árinu 2002. Leiðtogi Kristilegra demókrata hefur þegar viðurkennt ósigur en leiðtogi AfD, Ulrich Siegmund, segir of snemmt að segja til um hvort hann verði næsti forsætisráðherra í sambandsríkinu.Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður fór yfir kosningarnar og þróun þýskrar stjórnmálaumræðu í sjónvarpsfréttum.
Gætu orðið söguleg kosningaúrslit í Þýskalandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd