Fjórir til fimm lögreglubílar og annað eins af lögreglumótorhjólum veittu ökumanni Hopp-deilibíls í annarlegu ástandi eftirför frá Lágmúla að Breiðholtsbraut að Víðidal í dag. Á meðan á eftirförinni stóð ók hann utan í fjórar bifreiðar í hið minnsta, þar af tvo lögreglubíla.