Úkraína og Rússland þurfa bæði að gefa eftir ef friður á að nást

Bæði Úkraína og Rússland verða að slá af ítrustu kröfum sínum ef friður á að nást milli ríkjanna. Þetta sagði Steve Witkoff, annar sérlegra erindreka Bandaríkjastjórnar, en hann og kollegi hans Jared Kushner funduðu með Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta í Kænugarði í dag, degi eftir fund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta í Moskvu.„Þetta er snúið en við erum staðráðnir, okkur er umhugað um málið og vonum að það leiði til friðsamlegrar, diplómatískrar lausnar,“ sagði Witkoff eftir fundinn.Fundurinn var sagður mikilvægur en þar hafi þó ekki orðið nein straumhvörf.Zelensky sagði eftir fundinn að það eina sem gæti leitt til samkomulags væri leiðtogafundur milli hans og Pútíns. Þrátt fyrir að fundurinn með Witkoff og Kusner gæfi góð fyrirheit benti allt til þess að stríðið myndi teygja sig inn
Úkraína og Rússland þurfa bæði að gefa eftir ef friður á að nást

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd