Vilja fjarlægja klett af slysstað

Vegagerðin vill láta fjarlægja klettinn við Krýsuvíkurveg þar sem þrjú ungmenni létu lífið í bílslysi aðfaranótt mánudags. Banaslys varð á nákvæmlega sama stað fyrir tæpum tveimur áratugum. Rannsóknarnefnd umferðarslysa kallaði þá eftir varúðarskiltum, sem Vegagerðin telur sig hafa orðið við.Tæp vika er frá banaslysinu á Krýsuvíkurvegi, þar sem þrjú ungmenni létust eftir að bíll þeirra hafnaði á hraunkletti utan vegar. Talið er að bíllinn hafi verið á yfir 220 kílómetra hraða, en íbúar í grennd við slysstaðinn hafa ítrekað varað við ofsaakstri á veginum. ANNAÐ BANASLYS Á SAMA STAÐ Árið 2007 lést ökumaður bifhjóls þegar hjólið fór út af og rakst á sama hraunklett. Samkvæmt niðurstöðu rannsóknarnefndar umferðarslysa var ökumaðurinn á ofsahraða og missti stjórn á hjólinu þegar hann tók fra
Vilja fjarlægja klett af slysstað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd