Í fyrri hluta júnímánaðar var bíl ekið út úr ferjunni Norrænu og í land í Seyðisfjarðarhöfn, eftir siglingu frá Hirtshals í Danmörku. Íslenska lögreglan vissi að bíllinn var á leiðinni og hafði góðar gætur á honum og bílstjóranum.Þetta var sérútbúinn köfunarbíll, og í honum dýr köfunarbúnaður sem brasilískir fíkniefnakafarar áttu síðar í mánuðinum eftir að nota til að kafa hálfan annan kílómetra – fram hjá endilöngu álverinu í Straumsvík – og sækja í sjókistu súrálsskips stærstu kókaínsendingu sem lagt hefur verið hald á hér á landi. RÚMENSKUR VERKSTJÓRI – FJÖGUR ERLEND ÞJÓÐERNI Fréttastofa greindi fyrst frá Straumsvíkursmyglinu þriðjudaginn 30. júní. Lögregla hafði lagt hald á 106 kíló af kókaíni sem smyglað hafði verið til landsins í sjókistu búlgarska súrálsskipsins Koznitza, sem kom