Lögregla veitti ökumanni Hopp-deilibíls eftirför frá Lágmúla upp í Víðidal í Reykjavík stuttu eftir hádegi í dag. Ökumaðurinn ók utan í bíla meðan á eftirförinni stóð og að minnsta kosti einn lögreglubíl.„Það barst ábending um að það væri ökumaður þarna í annarlegu ástandi að fara af stað á bíl. Lögregla var þarna nokkuð nærri og veitti bílnum eftirför,“ segir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri á höfuðborgarsvæðinu.Þó nokkrir lögreglubílar og mótorhjól komu að eftirförinni sem hófst um klukkan 12.30.Ökumaðurinn nam staðar um klukkan 13 eftir að hann keyrði yfir umferðareyju við Víðidalinn.Ekki liggur fyrir hve marga bíla hann skemmdi. Talið er að hann hafi ekið á um 140 kílómetra hraða á einhverjum tímapunkti á meðan lögregla veitti honum eftirför.„Þetta hefur verið háskalegt aksturslag á þ