Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir mikla tekjumöguleika í ferðaþjónusturekstri hérlendis en það séu aðrar leiðir en skattur vænlegri til árangurs. Það séu blessunarlega allir aðilar sem komi að málinu sammála um að það séu gæðin en ekki magnið sem skipti mestu.