Útgönguspár spá AfD stórsigri í Saxlandi-Anhalt

Kjörstöðum hefur verið lokað í þýska sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. Samkvæmt útgönguspám þýska ríkisútvarpsins hefur harðlínuflokkurinn Alternative für Deutschland (AfD) unnið stórsigur.Flokknum er spáð 44,5% fylgi sem er meira en tvöföldun fylgis frá því í síðustu kosningum. Það er þó ekki nóg til að ná hreinum meirihluta á sambandsríkisþinginu.Kristilegum demókrötum, flokki Friedrichs Merz kanslara, er spáð 18,5% fylgi og missir 18,6%. Sá flokkur hefur stýrt Saxlandi-Anhalt frá árinu 2002.Kjörsókn var 65,4 prósent fyrir tveimur klukkustundum. Fleiri höfðu þá kosið en í kosningunum árið 2021.Niðurstöður kosninganna liggja fyrir í nótt.
Útgönguspár spá AfD stórsigri í Saxlandi-Anhalt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd