Á síðasta ári voru 71 brot gegn reglum um vímuefni og lyf í fangelsum skráð hjá Fangelsismálastofnun. Fjöldinn er þó minni en árin á undan og hefur farið dvínandi síðan á Covid-tímanum.Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, lagði fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra á síðasta þingi um fíkniefnanotkun í fangelsum. Svar Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra var birt á föstudag.Í svarinu er meðal annars að finna upplýsingar um fjölda skráðra brota á reglum um vímuefni og lyf í fangelsum frá 2020-2025. Fjöldi brota náði hámarki árin 2021 og 2022 á Litla-Hrauni og Hólmsheiði.Vandamálið sé útbreiddara á Litla-Hrauni en á Hólmsheiði. Nánast útilokað sé að koma í veg fyrir útbreiðslu fíkniefna á Litla-Hrauni en möguleikar til þess séu mun betri á Hólmsheiði.Gögnin en