Fjöldi sólskinsstunda vel yfir meðallagi í annars köldum ágúst

Ágústmánuður var tiltölulega kaldur. Það var úrkomusamt á norðan- og vestanverðu landinu en þurrara á suður- og austurhluta landsins. Norðan- og norðvestlægar áttir voru tíðastar í mánuðinum, en vindur var hægur og veður að mestu gott.Þetta kemur fram í samantekt Veðurstofunnar yfir tíðarfar í ágúst. 56 AUKA SÓLSKINSSTUNDIR Á AKUREYRI Í Reykjavík var meðalhiti 10,6 stig, sem er 0,6 stigum undir meðaltali síðustu tíu ára. Meðalhiti á Akureyri var 9,8 stig, 1,1 stigi undir meðallagi.Á landsvísu var meðalhiti 9,5 stig, 0,6 stigum undir meðallagi.Ágúst var engu að síður sólríkur. Sólskinsstundir í Reykjavík voru um 197, rúmlega 32 stundum yfir meðallagi. Á Akureyri voru þær um 194, nærri 56 stundum yfir meðallagi. ÚRKOMA VÍÐA YFIR MEÐALLAGI Á Akureyri og í Reykjavík var úrkoma þriðjungi
Fjöldi sólskinsstunda vel yfir meðallagi í annars köldum ágúst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd