Erill og nokkur ölvun á fjölmennri Ljósanótt – ungmenni kastaði flösku í lögreglumann

„Ljósanótt gekk almennt vel,“ segir Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum.Hún segir þó lögreglumenn ekki hafa mátt vera færri. Vegna góðviðris í gær var mikið af fólki saman komið og talsvert um ölvun meðal ungmenna.Ljósanótt er í Reykjanesbæ um helgina. Hátíðin er haldin fyrstu helgina í september ár hvert. Hátíðin náði hápunkti sínum í gær með stórtónleikum og flugeldasýningu. UNGMENNI VIÐRIÐIN LÍKAMSÁRÁSIR Verkefni lögreglu voru mörg eftir að formlegri dagskrá lauk í gærkvöldi.Tvær líkamsárásir eru á borði lögreglu eftir nóttina. Ungmenni undir 18 ára aldri voru viðriðin þær báðar.„Það var kastað glerflösku í lögreglumann, ein árásin, og hin er alvarleg líkamsárás, það er að segja verknaðurinn en afleiðingarnar ekki – sem betur fer,“ segir Bjarney. Sparkað var í liggja
Erill og nokkur ölvun á fjölmennri Ljósanótt – ungmenni kastaði flösku í lögreglumann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd