Fundu 255 ára gamlan skilding Sveins Pálssonar í Öræfum

Það var heldur óvenjulegur fundur sem beið gönguhóps sem var á ferð um Kvísker í Öræfum í sumar. Skildingur sem geymdur hafði verið inni í vörðu í 232 ár kom upp úr krafsinu.„Ég stend svo við vörðuna, er að horfa niður fyrir mig og hugsa: Ég kannski finn einhvern stein hérna sem ég get tekið með mér til minningar um þessa göngu upp að þessari vörðu,“ sagði Arna Harðardóttir sem kom auga á skildinginn en að eigin sögn segist hún engan veginn hafa áttað sig á því hve merkilegur fundurinn væri. Skildingurinn er nefnilega ekki einungis gamall heldur á hann sér áhugaverða sögu. KEMUR FYRIR Í FERÐABÓK SVEINS PÁLSSONAR Skildingurinn var í eigu Sveins Pálssonar, læknis og náttúrufræðings, raunar er skildingsins getið í ferðabók hans frá árinu 1794:„Á hólnum nýnefnda byggðum við vörðu úr grjóti
Fundu 255 ára gamlan skilding Sveins Pálssonar í Öræfum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd