„Erfitt að vera í kjaraviðræðum þegar óvissan er svona mikil“

Kjaraviðræðum smábátasjómanna miðar vel áfram og Örvar Már Marteinsson, formaður Samtaka smærri útgerða, segir öruggt að samningar muni nást. Áform innviðaráðherra um að gera breytingar á byggðakerfi fiskveiðistjórnunarkerfisins, til að mynda með hugsanlegu afnámi línuívilnunar, séu þó neikvætt innlegg í viðræðurnar.Samtök smærri útgerða og Landssamband smábátaeigenda hafa átt í viðræðum við Sjómannasamband Íslands síðan í maí á síðasta ári um kjarasamning smábátasjómanna. Þeir hafa verið samningslausir í tólf ár.Hlé hefur verið á viðræðunum síðan fyrir verslunarmannahelgi. Örvar Már segir þær hafa verið uppbyggilegar.„Það eru engin stór deilumál þannig séð. Þetta eru mest svona einhver útfærsluatriði. Ýmislegt hefur breyst frá því að upprunalegu kjarasamningarnir voru gerðir þannig að það
„Erfitt að vera í kjaraviðræðum þegar óvissan er svona mikil“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd