Áform um uppbyggingu á skíðasvæðinu í Skálafelli kunna að vera í uppnámi en samþykkt var á fundi samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins fyrir skemmstu að láta kanna hvort tilefni sé til að endurskoða samkomulag frá árinu 2018 um uppbyggingu á svæðinu.