Erindrekar Trumps hefja viðræður við Zelensky

Steve Witkoff og Jared Kushner, tveir af helstu erindrekum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, eru komnir til Úkraínu á fund Volodymyrs Zelensky Úkraínuforseta. Í gær sátu þeir langan fund með forseta Rússlands í Moskvu.Þetta er fyrsta heimsókn Witkoff og Kusnher til Úkraínu en þeir hafa ítrekað frestað ferðum þangað. Zelensky greindi frá því um hádegisbil að viðræður væru hafnar.Erindrekar Bandaríkjaforseta eru komnir til Úkraínu eftir að hafa átt langan fund með forseta Rússlands í gær. Forseti Úkraínu tók á móti þeim í Kyiv í morgun og viðræður eru hafnar.Steve Witkoff og Jared Kushner eru tveir af aðalsamningamönnum Trumps. Witkoff er gamall viðskiptafélagi og Kushner er tengdasonur forsetans.Viðræður þeirra við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í Moskvu í gær stóðu yfir í ríflega þrjár kl
Erindrekar Trumps hefja viðræður við Zelensky

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd