Tugmilljarða uppbygging Borealis Data Center á Blönduósi er komin vel á veg. Fermetrafjöldi gagnaversins verður tvöfaldaður og við það skapast um 150 störf á uppbyggingartímanum. Gagnrýnt hefur verið hversu fá störf verða að lokinni uppbyggingu.„Auðvitað fylgja þessu þannig séð fá störf, ef þú tekur fermetrafjöldann í byggingunum. Það er alveg óumdeilt. Það sem er að gerast núna með nýjum búnaði í gagnaverunum er það að kúnnarnir sem kaupa gagnageymslu af Borealis þeir fara fram á það að þeirra starfsmenn séu á svæðinu til að fylgjast með búnaðnum og sannreyna að allt sé í lagi,“ segir Pétur Arason, sveitarstjóri í Húnabyggð. ÍBÚAR FLESTIR SÁTTIR Gagnaver hafa verið gagnrýnd fyrir að vera frek á vatn og rafmagn. Fram undan er uppbygging Holtavörðuheiðarlínu 3 sem stórbætir raforkuaðgeng