Vegagerðin varar vegfarendur við miklu hvassviðri frá því í kvöld og fram á annað kvöld á Suðausturlandi, einkum í Öræfum. Aðstæður geta orðið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.Gul viðvörun vegna veðurs verður í gildi á Suðausturlandi frá 21:00 í kvöld til 16:00 á morgun.Skjámynd / Veðurstofa ÍslandsÍ tilkynningu frá Vegagerðinni segir að von sé á hvassri norðaustanátt og síðar norðanátt á Suðausturlandi með hviðum að 35 metrum á sekúndu. Hvassast verði frá miðnætti og fram undir hádegi á morgun. Gert er ráð fyrir að lægi annað kvöld.