Samband komið á í Mjóafirði

Farsíma- og netsamband komst á í Mjóafirði stuttu fyrir miðnætti í gærkvöld. Tveir ljósleiðarastrengir fóru í sundur á föstudagsmorgun sem hafði sambandsleysi í för með sér.Þetta staðfestir Atli Stefán Yngvason, upplýsingafulltrúi Mílu. Það var grjóthrun sem olli slitinu.Strengirnir fóru í sundur á stórum kafla og leggja þurfti yfir hálfan kílómetra af nýrri lögn. Erfitt var að gera við þá bæði vegna staðsetningar þeirra og veðurs á staðnum.Atli Stefán segir að heimafólk, meðal annars björgunarsveitin á Eskifirði, hafi aðstoðað við viðgerðina.
Samband komið á í Mjóafirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd