Handtekinn fyrir að stela dósum úr gámi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í allmörg útköll í gærkvöldi og í nótt vegna ölvunar, slagsmála og hávaða frá samkomum í heimahúsum.Í dagbók lögreglu segir meðal annars að maður hafi verið handtekinn í miðborginni fyrir að stela dósum úr gámi. Sá reyndist líka vopnaður hnífi og var kærður fyrir það.Ökumaður gröfu var kærður fyrir að nota farsíma við akstur. Þá kviknaði eldur í húsi í norðanverðri borginni. Hann reyndist hafa komið til í öryggistöflu sem tengdist heitum potti.
Handtekinn fyrir að stela dósum úr gámi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd