Það kom mörgum á óvart þegar þær fregnir bárust í júlí að Mykhailo Fedorov, varnarmálaráðherra Úkraínu, hefði verið vikið úr embætti. Mótmæli brutust út og fólk krafðist þess að hann fengi embættið aftur. Í fréttaskýringaþættinum Heimskviðum þessa helgina var fjallað um brottvikningu Fedarovs.Það var stirt samband á milli Fedorovs og þáverandi hershöfðingja Úkraínuhers og það var talin ástæða þess að honum var vikið úr ríkisstjórninni. Fedorov var þó boðin sérstök staða innan ríkisstjórnarinnar sem hann hafnaði. Hann var aðeins í embætti í sex mánuði.Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherra var vikið úr embætti. Síðar lagði hann til að haldnar yrðu kosningar. Þá hafa orðið vendingar í spillingarmáli sem teygir sig inn á forsetaskrifstofu