Kjörstaðir hafa verið opnaðir vegna þingkosninga í þýska sambandslandinu Saxlandi-Anhalt. Það er í austurhluta Þýskalands, hluti þess sem áður var Austur-Þýskaland. Harðlínuflokkurinn Alternative für Deutschland (AfD) eygir möguleika á að ná þar hreinum meirihluta enda hefur fylgi hans í skoðanakönnunum verið í kringum fjörutíu af hundraði. Flokkurinn gæti jafnvel náð stýra ríkisstjórn í þýsku sambandslandi fyrsta sinni. Það er þó ekki fast í hendi. Kjósendur ráða niðurstöðunni, fimm prósent atkvæða þarf til að komast á þing. Kannanir benda til að þrír flokkar séu undir þeim mörkum, sem gagnast AfD. Um það bil 1,7 milljónir hafa kosningarétt og kjörstaðir verða opnir til klukkan sex síðdegis að staðartíma. Búist er við fyrstu útgönguspám skömmu síðar. Litið hefur verið á kosningarnar sem p