Álverksmiðjan á Grundartanga nánast komin í fullan rekstur

Álverksmiðja Norðuráls á Grundartanga er komin í nánast full afköst tíu mánuðum eftir að óvænt bilun varð í rafspennum versins. Bilunin varð til þess að álframleiðslan dróst saman um tvo þriðju hluta enda þurfti að stöðva algerlega framleiðslu í annarri kerlínu versins. Í frétt Skessuhorns er vísað í þau orð Gunnars Guðlaugssonar forstjóra Norðuráls við Morgunblaðið að mun fyrr hafi tekist að endurgangsetja verksmiðjuna en búist var við síðasta haust. Gangsetning hófst í apríl og nú er svo komið að verksmiðjan hefur náð 95 prósent afköstum. Vel hafi gengið að útvega nýja spenna og Gunnar segir tvö sett væntanleg til landsins í september. Ætlunin sé að skipta út fjórum spennasettum sem taki fram á næsta ár en hafi ekki áhrif á framleiðslugetuna. Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað mikið, me
Álverksmiðjan á Grundartanga nánast komin í fullan rekstur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd