Ísraelsher hvetur íbúa bæjarins Arab Salim í suðurhluta Líbanons til að forða sér vegna yfirvofandi loftárása. Í yfirlýsingu hersins segir að þær séu í hefndarskyni fyrir drónaárás Hezbollah-hreyfingarinnar á hermenn að störfum á öryggissvæði í Suður-Líbanon.Það segir herinn vera óskammfeilið brot Hezbollah á vopnahléssamkomulaginu sem í gildi er. Engan virðist hafa sakað í árásinni. Herinn segir Hezbollah eiga sér vígi nærri Arab Salim og því sé bærinn skotmark.Líbanon dróst inn í átökin í mars eftir árásir Hezbollah á Ísrael. Ísraelskar hersveitir hófu þá loftárásir og innrás á landi sem líbönsk yfirvöld segja hafa kostað á fimmta þúsund mannslíf. Talsvert dró úr átökum í júní eftir að þríhliða samkomulag komst á milli Líbanons, Ísraels og Bandaríkjanna sem átti að tryggja frið í Líbanon