Mike Huckabee er sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael.EPA / ALAA BADARNEHSendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, Mike Huckabee, sakar bresk yfirvöld um gyðingahatur eftir að utanríkisráðherrann Ed Milliband sagði stöðu almennings á Gaza vera skelfilega. „Bretar hafa farið yfir strikið. Gyðingahatur ríkisstjórnarinnar er stjórnlaust og hún tekur ekkert tillit til staðreynda,“ skrifaði Huckabee á X.Sendiherrann brást svona við myndskeiðsbirtingu Millibands á samfélagsmiðlum þar sem hann sagði Breta þurfa að bregðast skjótt við hræðilegu ástandi á Gaza. Hann hefði verið þar staddur og fengið staðreynt að Ísraelsríki stöðvaði afhendingu lyfja og annarra nauðsynja og á sama tíma týndu börn lífi meðan þau biðu aðstoðar.