Ævintýrapersónurnar við Oddeyrargötu fara í vetrarhvíld á morgun

Ævintýragarðurinn við Oddeyrargötu á Akureyri verður lokaður frá og með morgundeginum, mánudeginum 7. september, og fram á næsta vor samkvæmt frétt vefmiðilsins Akureyri.net.Garðurinn er við heimili alþýðulistamannsins Hreins Halldórssonar og ævintýrapersónurnar þar eru handverk hans, dvergar og prinsessur, prinsar og drottningar. Hreinn hefur frá sumrinu 2022 haft garðinn opinn endurgjaldslaust yfir sumartímann.Hann kveðst í samtali við vefmiðilinn ánægður með sumarið og sérstaklega umgengni gesta um garðinn þótt heldur færri hafi komið þangað en í fyrra.Hreinn kemur ævintýraverunum í skjól yfir veturinn, yfirfer búnað, dyttar að því sem látið hefur á sjá og gerir garðinn kláran fyrir næsta sumar. Þó verður skessan Króknefja áfram á sínum stað í vetur og gætir Ævintýragarðsins, eins og Hr
Ævintýrapersónurnar við Oddeyrargötu fara í vetrarhvíld á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd