Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, heldur til Grænlands í dag í tveggja daga heimsókn til að ítreka stuðning sambandsins við þetta næsta nágrannaland Íslands og sjálfstjórnarsvæði Danmerkur, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur augastað á. Á mánudag er fyrirhugað að hún undirriti sameiginlega yfirlýsingu Evrópusambandsins og Grænlands. „Grænland verður sífellt mikilvægara fyrir ESB sem hlið að norðurslóðum og vegna...