Milei hótar olíufyrirtækjum refsiaðgerðum starfi þau nærri Falklandseyjum

Argentínsk stjórnvöld boða að viðurlög og refsingar bíði þeirra olíufélaga sem starfa í leyfisleysi nærri Falklandseyjum eftir að Javier Milei forseti sagði í sjónvarpsávarpi vinda breytinga blása þannig að landið geti gert kröfu til eyjaklasans. Forsetaskrifstofan sagðist í yfirlýsingu á föstudag hafa fyrirskipað rannsókn á starfsemi 45 fyrirtækja tengdum rannsóknum og vinnslu jarðefna við Falklandseyjar. Þau voru ekki nafngreind en argentínskir miðlar segja bandarísk, kanadísk, ísraelsk, dönsk, hollensk og bresk fyrirtæki á lista stjórnvalda. Argentínumenn og Bretar háðu mannskætt tíu vikna stríð um yfirráð yfir eyjunum árið 1982 með sigri þeirra síðarnefndu. Milei flutti ávarp á fimmtudag þar sem hann endurnýjaði landakröfur Argentínu og hótaði olíufyrirtækjum refsiaðgerðum. Í gær sendu
Milei hótar olíufyrirtækjum refsiaðgerðum starfi þau nærri Falklandseyjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd