Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs segir sögulegan viðburð hafa orðið í sögu landsins í kvöld þegar Spectrum 2 geimflauginni var skotið upp frá geimferðamiðstöðinni á Andøya klukkan tólf mínútur yfir tíu að staðartíma.Spectrum er lítil tveggja þrepa flaug framleidd af þýska sprotafyrirtækinu Isar Aerospace, sem ætlað er að koma litlum og meðalstórum gervihnöttum á sporbaug um jörðu. „Árangursríkt geimskot frá Andøya markar tímamót fyrir Noreg sem geimferðaríki,“ skrifaði Støre á Facebook í kvöld og mærði samvinnuna við Þjóðverja.Fyrsta þrep flaugarinnar féll í hafið sunnan við Grænland og annað nærri Norðurskautinu. Verkefnið nýtur stuðnings frá Geimferðastofnun Evrópu. Í frétt NRK segir að þetta sé fyrsta geimskotið frá Vestur-Evrópu enda þróun flaugarinnar liður í því að auka sjálf