Þrátt fyrir að heimsmeistaramótið í fótbolta sé nýafstaðið eru sumir sem ekki hafa fengið nóg af fótboltakeppnum. Vaskir strákar úr Garðabæ tóku málin í eigin hendur og settu á laggirnar sitt eigið fótboltamót, sem þeir kalla Skemmtimótið. Strákarnir sjá um allt skipulag sjálfir og keppnisskapið var allsráðandi.Átta ára strákar úr Garðabæ stofnuðu sitt eigið fótboltamót. Þar eru verðlaunin þrívíddarprentuð og vafaatriði í leikjunum eru metin með aðstoð farsíma, í stað VAR-dómgæslu.Sigurliðið fékk bikar að launum auk þess sem lið í fyrsta til fjórða sæti fengu medalíur. Öll eru verðlaunin þrívíddarprentuð heima hjá Kristjáni Stormi Friðfinnssyni, einum skipuleggjanda.Spurður um tilurð mótsins bendir Kristján á félaga sinn og segir: „Hann sagði bara mér: Viltu halda mót? Og svo bara að safna