Vladimír Pútín Rússlandsforseti átti „einstaklega opinskátt“ samtal við útsendara Bandaríkjastjórnar í nokkrar klukkustundir í dag um leiðir til að ljúka innrásarstríðinu í Úkraínu. Þeir Steve Witkoff og Jared Kushner hafi borið fram fjölda hugmynda við Pútín forseta. Yuri Ushakov talsmaður stjórnarinnar sagði á blaðamannafundi að Bandaríkjamennirnir hefðu greinilega komið vel undirbúnir til fundarins. „Þeir báru ekki aðeins á borð hefðbundnar óskir um að stríðinu linni heldur fjölda hugmynda að leiðum til að svo megi verða,“ sagði Ushakov. Hann sagði rússnesk stjórnvöld bjartsýn á að settum markmiðum verði náð. Þeir Witkoff og Kushner eru sagðir farnir frá Moskvu og boðað hefur verið að þeir ræði við úkraínska ráðamenn á morgun. Pútín tilkynnti í dag að hann hefði fyrirskipað þriggja daga