Nær dauða en lífi eftir að hafa innbyrt nikótínpúða

Kátur er íslenskur fjárhundur á besta aldri, elskaður og dáður af fjölskyldu sinni. Fyrir nokkru komst Kátur í hann krappann og var vart hugað líf.Hundar geta veikst alvarlega við að innbyrða nikótínpúða. Dýralæknir segir grun um að hundar hafi látist vegna þessa. Íslenski fjárhundurinn Kátur var nærri dauða en lífi eftir að hafa komist í slíkan púða.„Við vorum í heimsókn hjá fólki og hann var úti í garði,“ segir Hafdís Brynja Guðmundsdóttir eigandi Káts.„Það var gangstétt við hliðina á garðinum. Við höfðum engar áhyggjur af honum, þetta var bara lokaður garður. Þegar við vorum að fara, var hann eitthvað skrýtinn en við spáðum ekkert meira í það.“ STÓÐ VARLA UNDIR SÉR OG ÆLDI Heilsufar Káts versnaði. „Við settum hann út, hann varla stendur undir sér og ælir. Við höldum áfram upp í Borga
Nær dauða en lífi eftir að hafa innbyrt nikótínpúða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd