Truflun á kerfum fjártæknifyrirtækisins Teya varð í dag sem olli því að posar sem tengdir eru kassakerfum tóku ekki við færslum. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að kerfið sé komið í lag og sé stöðugt.Truflunin náði ekki til annarra þjónusta Teya, svo sem handfrjálsra posa og annarra greiðslulausna. Orsök truflunarinnar liggur ekki fyrir og málið er í skoðun. Í tilkynningu Teya segir enn fremur að öryggi greiðslna og gagna viðskiptavina hafi ekki verið ógnað.„Við biðjum þá viðskiptavini okkar sem urðu fyrir þessar truflun og þeirra viðskiptavini sömuleiðis innilegrar afsökunar á óþægindunum. Við gerum okkur fulla grein fyrir því hversu mikilvægt er að greiðslumiðlun sé áreiðanleg og lítum því málið alvarlegum augum,“ segir í tilkynningunni.