Kleinuhringjakeppni og dúkakippingar á 30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans

Hótel- og matvælaskólinn fagnaði í dag 30 ára afmæli. Framkvæmdastjóri skólans segir námið mikilvægara en oft áður í ljósi vaxandi ferðaþjónustu. Fjöldi fólks kom saman í húsnæði skólans í Kópavogi í dag, enda ýmislegt í boði fyrir gesti og gangandi.„Það eru alls konar örkynningar, það eru fyrirtækjakynningar, það eru lítil námskeið, bakaríið opið, matreiðslukeppnir,“ segir Haraldur Jóhann Sæmundsson, framkvæmdastjóri Hótel- og matvælaskólans.Til dæmis var krullukeppni, þar sem ekki var leikið með hefðbundinn krullupökk, heldur notaðar íslenskar rófur. Svo var kleinuhringjakeppni. Til að dæma í henni voru kallaðir til sérfræðingar í greininni: Lögreglan og sendiherra Bandaríkjanna.
Kleinuhringjakeppni og dúkakippingar á 30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd