Umferðarslys austan Sólheimajökulsvegar

Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi austan Sólheimajökulsvegar á sjöunda tímanum í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar auk þriggja sjúkrabíla og dælubíls voru kölluð út. Þetta staðfestir Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi. Upplýsingar um slys á fólki liggja ekki fyrir.Fréttastofu hafa borist ábendingar um miklar umferðartafir vegna slyssins.Fréttin verður uppfærð.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Umferðarslys austan Sólheimajökulsvegar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd